Nú hafa eflaust margir fengið sendan tölvupóst eða séð tilkynningu frá RSK, sem er dagsett 3.11.2017, en hún ber yfirskriftina „Færsla bókhalds“. Fyrsta setningin í þessari tilkynningu segir: „Að gefnu tilefni vill ríkisskattstjóri árétta að öllum bókhaldsskyldum aðilum ber að færa bókhald og haga færslum, bókhaldsbókum og reikningaskipan í samræmi við bókhaldslög.“ Þetta virðist hafa verið sent á alla netfangaskrá RSK, til forsvarsmanna fyrirtækja o.fl. til þess eins að minna á gildi ýmissa laga og reglna sem í gildi eru og varða bókhald og virðisaukaskattskil.
Við viljum vara fólk við því að taka þessu til sín eins og bókhaldsmál og virðisaukaskattskil séu ekki í lagi og RSK vilji að viðkomandi komi því í lag, nema vitað sé að svo er. Þetta er fjölpóstur sem virðist ætlað að minna fólk á að passa upp á bókhaldið sitt og virðisaukaskattskil.
Góðar stundir í jólaundirbúningi!